Hlíf Guðmundsdóttir formaður félagsins tók við styrknum og lýsti hún ánægju sinni með þetta myndarlega framlag sem sannarlega kæmi sér vel fyrir skjólstæðinga félagins. Hún sagði ferða- og gistikostnað verulega íþyngjandi fyrir sjúklinga sem oft þurfi að dvelja langdvölum frá heimilum sínum, en ýmsar langtíma krabbameinsmeðferðir, svo sem geislameðferðir, er einungis hægt að veita á sjúkrahúsum í Reykjavík.