Sigurður segir að aðrir kaupmenn á Akureyri taki í sama streng, flestir séu mjög ánægðir með gott gengi. Ferðamenn af skemmtiferðaskipum koma í töluverðum mæli í miðbæinn og segir Sigurður þá yfirleitt versla eitthvað, mismikið eins og gengur en flestir fari að minnsta kosti með minjagrip í vasanum aftur um borð.
„Þeir skila alveg sínu,“ segir hann. Eitthvað örlítið hefur dregið úr eftir að veður versnaði, en Sigurður var bjartsýnn á að áfram yrði þó líflegt í miðbæ Akureyrar fram í ágústmánuð.