Kátir dagar í Langanesbyggð og nágrenni um helgina

Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að sjá myndlistasýningu í símaklefa og í raun erfitt að ímynda sér hvernig hún kemst fyrir. Það ætla myndlistamennirnir Gústav Geir Bollason og Þórarinn Blöndal þó að reyna á bæjarhátíðinni Kátir dagar sem haldin verður um helgina í Langanesbyggð og nágrenni.  Það kennir ýmissa grasa á hátíðinni og er dagskráin óvenju fjölbreytt í ár.  

Þar má meðal annars nefna ljósmyndasýningu, stuttmyndasýningu, söngvakvöld, útimarkað, grill og brennu, auk fjölda annarra stakra viðburða. Á fimmtudagskvöld mæta nokkrir Ljótir hálfvitar á staðinn auk þess sem hagyrðingar láta fjúka í kviðlingum á föstudagskvöld og óhætt að fullyrða að þar verður engum hlíft . Til að tefla ekki í neina tvísýnu með veðurspá voru Veðurguðirnir fengnir á staðinn og munu þeir trylla lýðinn á dansleik á laugardagskvöld, auk þess að mæta með sólina með sér. Þá verður sunnudagurinn þétt skipaður þar sem Bakkfirðingar verða sóttir heim. Þar verður keppt í kraftakeppninni  um Langanesvíkinginn og boðið upp á Bakkfirska kjötsúpu. Einnig verður á sunnudeginum sérstök menningardagskrá í Svalbarðsskóla  í Þistilfirði tileinkuð Jóni Trausta en þar mun stíga á stokk nýstofnaði danshópurinn Feti framar og dansa þjóðdansinn vefarann. Tvær sérstæðar göngur verða farnar um helgina en á föstudag verður gengið á Gunnólfsvíkurfjall sem annars er lokað fyrir almennri umferð og á sunnudag verður gengið á söguslóðir Höllu og heiðarbýlisins. Allar upplýsingar um hátíðina eru að finna á lnb.is.

Nýjast