Karl Frímannsson ráðinn fræðslustjóri

Karl Frímannsson.
Karl Frímannsson.

Karl Frímannsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri fræðslusviðs Akureyrarbæjar og tekur við starfinu af Soffíu Vagnsdóttur. Karl er fæddur árið 1959 og er með meistarapróf í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri þar sem lokaverkefni hans fjallaði um ábyrgð skólastjóra grunnskóla.

Hann starfaði síðast sem aðstoðamaður mennta- og menningarmálaráðherra en hefur áður verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi, sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit og skólastjóri Hrafnagilsskóla í sama sveitarfélagi. Karl hefur áður starfað hjá Akureyrarbæ sem þróunarstjóri og sem fræðslustjóri.

Karl mun taka til starfa fljótlega, segir á vef Akureyrarbæjar.

Nýjast