Kannabisræktun og innbrot á Akureyri

Seinni partinn í gær framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit í íbúð á Akureyri vegna gruns um að þar færi fram kannabisræktun. Við leit í íbúðinni fundust fimm kannabisplöntur og fimm hitalampar auk annars búnaðar sem notaður var við ræktunina. Einnig fannst þýfi úr innbroti í veitingahúsið Strikið á Akureyri. Tveir menn á þrítugsaldri, sem voru í íbúðinni, voru handteknir og viðurkenndu við yfirheyrslur að hafa staðið fyrir ræktuninni á kannabisplöntunum og annar þeirra viðurkenndi að hafa brotist inn á Strikið.

Nýjast