Káinn kveðinn á Sigurhæðum

Kvæðamannafélagið Gefjun á Akureyri heldur opinn kyningarfund á Sigurhæðum miðivikudaginn 7. apríl kl. 20:00. Þar munu félagar kynna kveðanda og rímnakveðskap. Félagið var stofnað fyrir fimm árum og hefur verið jafn stígandi  í starfsemi þess. Fundinn ber upp á fæðingardag kímniskáldsins Káins, en fullu nafni hét hann Kristján Níels Jónsson.  

Hann fæddist á Akureyri 1860, en flutti ungur til Kanada. Afmælisbarnið kemur við sögu í kveðskap Gefjunarmanna á Sigurhæðum, en  Káinn var alla tíð skemmtinn í kveðskap sínum. Hann var ekki mikill bindindismaður, nema síður væri. Það kemur glöggt fram í vísu sem hann orti til konu nokkurrar, sem hafði gert ítrekaðar en mislukkaðar tilraunir til að "þurrka" skáldið:

Bakkus gamli gaf mér smakka

gæðin bestu, öl og vín.

Honum á ég það að þakka,

að þú ert ekki konan mín.

Nýjast