Hann fæddist á Akureyri 1860, en flutti ungur til Kanada. Afmælisbarnið kemur við sögu í kveðskap Gefjunarmanna á Sigurhæðum, en Káinn var alla tíð skemmtinn í kveðskap sínum. Hann var ekki mikill bindindismaður, nema síður væri. Það kemur glöggt fram í vísu sem hann orti til konu nokkurrar, sem hafði gert ítrekaðar en mislukkaðar tilraunir til að "þurrka" skáldið:
Bakkus gamli gaf mér smakka
gæðin bestu, öl og vín.
Honum á ég það að þakka,
að þú ert ekki konan mín.