22. ágúst, 2009 - 11:12
Fréttir
KA og Þór leika bæði í dag í 18. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. KA fær ÍA í heimsókn
á Akureyrarvöll en ÍA er í harðri botnbaráttu í deildinni. KA- menn hafa hinsvegar lítið upp á annað en stoltið
að spila eftir að hafa misst af toppbaráttunni í deildinni og sæti í efstu deild að ári orðinn fjarlægur draumur.
Þór sækir Víking frá Ólafsvík heim en Þórsurum hefur gengið afar illa á Ólafsvíkurvelli undanfarin
ár en eftir sigur gegn toppliði Selfoss í síðasta leik mæta Þórsarar eflaust fullir sjálfstraust í leikinn. Víkingur
Ó. situr á botni deildarinnar og er fátt sem getur bjargað liðinu frá falli.
Leikirnir hefjast báðir kl. 16:00.