KA og Þór verða bæði eldlínunni á morgun í 1. deild karla í knattspyrnu. KA sækir ÍR heim á ÍR- völlinn en Þór tekur á móti Fjarðarbyggð á Þórsvellinum.
„Mér líst bara sæmilega á leikinn gegn Fjarðabyggð og það verður gott að vera á heimavelli,” segir Páll Viðar Gíslason, aðstoðarþjálfari Þórs, m.a. um leikinn gegn Fjarðabyggð á morgun.
Steingrímur Örn Eiðsson, aðstoðarþjálfari KA, segir sína menn spennta fyrir leiknum gegn ÍR. „Leikurinn leggst vel í okkur og okkur hlakkar bara til að mæta þeim og við ætlum okkur að taka þann leik," segir Steingrímur m.a.
Leikirnir hefjast báðir kl. 18:30.
Nánar um leikina í Vikudegi í dag.