KA er komið úrslit MIKASA- deildar karla í blaki eftir 3:1 sigur gegn Þrótti R. í KHÍ húsinu í kvöld í
öðrum leik liðanna í úrslitakeppninni. Þróttur vann fyrstu hrinuna 25:21, en KA vann næstu þrjár hrinur, 25:22, 25:23 og 25:16. KA
vann þar með einvígi liðanna 2:0 og er einu skrefi frá þriðja titlinum í vetur. KA mætir annað hvort Stjörnunni eða HK í
úrslitum.
Árlegur fundur ungmennaráðs Akureyrarbæjar og bæjarstjórnar fór fram í Ráðhúsinu þriðjudaginn 17. mars. Á fundinum komu fram fjölbreytt sjónarmið og ábendingar um málefni sem varða börn og ungmenni í bænum.
Full ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af framtíð áætlunar- og sjúkraflugs um Húsavíkurflugvöll. Eins og kunnugt er liggur áætlunarflug niðri um Húsavíkurflugvöll um þessar mundir sem er miður.
Fjölmennur aðalfundur Eldri borgara á Akureyri (EBAK) fór fram i gær. Á fundinum var borin upp og samþykkt ályktun til þeirra framboða sem bjóða fram lista í komandi bæjarstjórnarkosningum þann 16 maí n.k.
15. mars er alþjóðlegur dagur Long Covid. Þá hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) ákveðið að tileinka marsmánuði baráttunni gegn mýtum um Long Covid og skerpa á vitund almennings um þau alvarlegu einkenni sem fylgja þessu ástandi.
Sprettur-Inn, í samstarfi við Skólafélagið Huginn og Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, hefur hrundið af stað nýju samfélagsverkefni undir yfirskriftinni „Sneið fyrir samfélagið“.