29. maí, 2009 - 08:01
Fréttir
KA tekur á móti Fjarðabyggð í kvöld þegar félögin mætast í fjórðu umferð 1. deildar karla í
knattspyrnu. Þór heldur suður á bóginn í dag og sækir Víking R. heim. Leikur KA og Fjarðabyggðar fer fram á
Akureyrarvelli og hefst kl. 19:15. Steingrímur Örn Eiðsson, aðstoðarþjálfari KA, segir stemmninguna góða í hópnum og sýnir
menn ætli sér sigur í kvöld.
"Við erum á heimavelli og ætlum að sjálfsögðu að vinna leikinn og skríða aðeins ofar í stigatöflunni," sagði
Steingrímur.
Leikur Víkings R. og Þórs hefst kl. 18:30 og leikið er á Víkingsvelli. Þá leikur Draupnir sinn fyrsta leik
á Íslandsmótinu í 3. deild karla í kvöld þegar liðið fær Einherja í heimsókn. Leikið verður í
Boganum og hefst leikurinn kl. 20:00.