KA er deildarmeistari í blaki kvenna

KA deildarmeistarar kvenna i blaki  2021-22   Mynd Þórir Tryggvason
KA deildarmeistarar kvenna i blaki 2021-22 Mynd Þórir Tryggvason

KA er deildarmeistari í blaki kvenna en stelpurnar lyftu bikarnum eftir sannfærandi 3-0 sigur á HK í dag.   KA konur urðu bikarmeistarar um síðustu helgi  eins og kunnugt er og hafa verið illstöðvanlegar í vetur.

Framundan er 4 liða úrslitakeppni og mæta deildarmeistararnir liði Þróttar-Fjarðabyggðar í fyrstu umferð þar sem vinna þarf tvær viðreignir til þess að tryggja sér sæti í úrslitaleikjum um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn.

Fyrsti leikur i rimmu liðanna verður á skírdag og hefst hann kl 14.00

 


Athugasemdir

Nýjast