Jón Hrói ráðinn sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps

Jón Hrói Finnsson var í dag ráðinn sveitarstjóri í Svalbarðsstrandarhreppi. Hann var valinn úr stórum hópi umsækjenda og segir Guðmundur Bjarnason oddviti að menn séu ánægðir með að nýr sveitarstjóri sé kominn til starfa í hreppnum. „Það er gott að þetta er búið og menn eru sáttir við þessa niðurstöðu," segir hann.   

Jón Hrói kemur til starfa innan tíðar. Hann er fæddur árið 1972. Hann lauk BA-prófi í stjórnsýslufræði frá Árósarháskóla árið 2000 og embættisprófi frá sama skóla árið 2004.  Hann starfaði hjá Arla Food að ýmsum skipulagstengdum verkefnum og við stjórnsýsluráðgjöf hjá ParX frá árinu 2004. Frá því í byrjun árs 2007 hefur hann verið þróunarstjóri í Fjallabyggð.

Nýjast