Á heimasíðunni er eitt besta safn ljósmynda og efnis um fjallamennsku hverskonar á Íslandi en þó með sérstakri áherslu á fjallaskíðaferðir, þyrluskíðun, ísklifur og Alpaferðir. Jökull býður uppá mikið úrval ferða á Íslandi sem og sérsniðnar Alpa ferðir fyrir Íslendinga, en hann er eini Íslendingurinn sem hefur starfsréttindi í Evrópsku Ölpunum. Jökull náði þeim merka áfanga á síðasta ári að verða fyrsti Íslendingurinn til að útskrifast með hina gríðarlega virtu alþjóðlegu UIAGM-IFMGA Fjallaleiðsögumanna gráðu. Þetta er árangur yfir tíu ára þrotlausrar þjálfunnar og prófaferlis sem er án efa eitt það erfiðasta í heiminum þar sem aðeins um 10% þeirra sem hefja námið ná að ljúka fullum réttindum.
Jökull starfar víðvegar um heiminn við fjallaleiðsögn allt árið um kring m.a í Kanada yfir köldustu vetrarmánuðina í þyrluskíðaleiðsögn, á Íslandi á vorin í fjalla og þyrluskíðaferðum. Jökull hefur einnig um árabil boðið uppá ferðir á Hvannadalshnúk og fleiri fjöll á Íslandi. Alparnir, Afríka, Suður Ameríka og Nepal eru einnig á lista yfir þá staði sem Jökull starfar reglubundið á.