Eftir bragðdaufann og tíðindalítinn fyrri hálfleik færðist fjör í leikinn í þeim seinni. Á 62. mínútu fengu Þórsarar hornspyrnu og upp úr henni kom fyrsta mark leiks þegar Jóhann Helgi skallaði boltann í netið og staðan 1:0. Átta mínútum síðar var Jóhann Helgi aftur á ferðinni. Hann fékk þá boltann fyrir utan vítateig KA- manna, lagði boltann fyrir sig og skoraði með góðu skoti í stöngina og inn.
Eftir annað markið voru Þórsarar mun líklegri til bæta við þriðja markinu en KA að minnka muninn. Þórsarar voru einfaldlega betri í kvöld og fögnuðu sanngjörnum 2:0 sigri og eru til alls líklegir í toppslagnum.