Íþróttafélög á Akureyri og höfuðborgarsvæðinu standa jafnfætis

Íþróttfélög á Akureyri standa fyllilega jafnfætis íþróttafélögum á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar styrki til reksturs skrifstofu hjá íþróttafélögum. Þetta segir Kristinn Svanbergsson, deildarstjóri íþróttadeildar Akureyrarbæjar. Hann kynnti fyrir bæjarráði á dögunum niðurstöðu athugunar á starfsmannahaldi stóru íþróttafélaganna á Akureyri, Þórs og KA, í samanburði við íþróttafélögin á höfuðborgarsvæðinu. „Menn voru að velta þessu fyrir sér vegna auglýsinga sem birtar voru í Reykjavík frá stóru íþróttafélögunum þar í bæ, þar sem ný störf voru auglýst. Við hjá Akureyrarbæ fórum þá að velta því fyrir okkur hvort mikil fjölgun starfa hefði orðið vegna þess að Reykjavíkurborg væri að borga fyrir svo mörg störf. Ég skoðaði það aðeins en svo reyndist ekki vera. Í flestum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu er verið að vinna út frá sömu forsendum og hér, það er að segja með því að styrkja stóru félögin með einhverri ákveðinni upphæð vegna reksturs skrifstofu," sagði Kristinn.

Hann bætti við: „ Eitt er þó nýtt í þessum málum hjá Reykjavíkurborg og ÍBR, borgin styrkir félögin með ákveðinni peningaupphæð vegna íþróttafulltrúa en ekki vegna 4-5 starfsmanna eins og menn kannski héldu hér." Kristinn segir aðspurður að Akureyri standi fyllilega jafnfætis sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og vel það hvað varði styrki til skrifstofu, sérstaklega ef miðað er við fjölda iðkenda hjá félögum.

"Ljóst er að það sem er nýtt í þessu eru þessir styrkir hjá Reykjavíkurborg til stóru félaganna vegna íþróttafulltrúa, sem við erum ekki með," sagði Kristinn. Hann kvaðst ekki geta sagt til um hvort breytingar yrðu hjá Akureyrarbæ í ljósi þessa, slíkt hefði ekki verið rætt enn sem komið er í það minnsta. "Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er ljóst að Akureyrarbær stendur sig afar vel hvað varðar framlög í málaflokkinn og er þar fremst sveitarfélaga landsins," sagði Kristinn. Hann bætti við að alltaf væru skiptar skoðanir um forgangsröðun og skiptingu fjármagns, sem eðlilegt er. Kristinn sagði að á undanförnum árum hafi mikið fjármagn farið í uppbyggingu íþróttamannvirkja og framhald verði á því á næstu árum samkvæmt samningum. Því sé umtalsvert fé bundið vegna reksturs þeirra og þar af leiðandi geti verið erfiðara að auka fjármagn í innra starf félaganna.

Nýjast