Viðskiptavinir geta skoðað vörur einstakra framleiðenda, vörur í ákveðnum búðum eða vörur í öllum búðum. Þá verða viðtöl við alla framleiðendur á heimasíðunni. Framleiðendur íslensks handverks og þeir sem búa til vörur sem eiga uppruna sinn í ríki íslenskrar náttúru geta selt vörur sínar í LB. Næstu vikur verður leitað að framleiðendum sem vilja vera með og uppfylla þær kröfur sem gerðar eru, en þær eru fyrst og fremst vandvirkni og fallegt handbragð. Segja má að hver framleiðandi fái sína "heimasíðu" en hægt verður að kalla fram allar vörur sem viðkomandi er með í Lb. Áhersla verður lögð á „söguna á bak við vöruna". Tekið verður stutt viðtal við þá sem eru með vörur í Lb og birt mynd af þeim við vinnu sína, en þannig verður reynt að gera heimasíðuna „heimilislega" ef svo má að orði komast, segir í kynningu. Kaupendur greiða fyrir vöruna og heimsendingu hjá Lb. Kaupendum verður gerð grein fyrir því, ef þeir þurfa að bíða þar til framleiðandi er búinn að gera það sem þeir óskuðu eftir. Í sumum tilvik getur kaupandi þurft að bíða í 2-3 vikur meðan peysa er prjónuð svo dæmi sé tekið. Ef framleiðandi á vöruna til á lager fer hún vissulega strax til kaupanda! Lb annast sendingu á vörum til kaupenda. Fyrst verður sett upp íslensk heimasíða en stefnt er að því að vorið 2010 verði heimasíðan einnig á þýsku og sænsku.
Lb urðu til með stuðningi Vaxtarsamnings Vesturlands. Þeir sem vilja selja vörur með aðstoð Lb eru beðnir um að hafa samband sem fyrst. Þeim verður sent eyðublað vegna vöruskráningar og starfsreglur Lb. Í upphafi þarf framleiðandi að senda Lb sýnishorn af því sem hann vill að selt sé fyrir hann. Eðlilega þurfa Lb að skoða og meta það sem sett verður á heimasíðuna. Þá þarf að ljósmynda hvern hlut frá ýmsum sjónarhornum. Sérstök áhersla verður lögð á vandaða myndatöku. Vörusýnishorn verða senda til baka þegar mati og ljósmyndun er lokið. Lb liggja ekki með lager. Í upphafi er gert ráð fyrir að hver framleiðandi geti boðið upp á níu mismunandi vörur en sú tala mun hækka umtalsvert þegar síðan er komin á skrið. Þátttaka verður ekki bundin við eina búð. Einn og sami framleiðandinn getur verið í þeim öllum ef því er að skipta. En hann þarf ekki að vera nema með eina vörutegund í einni búð ef hann svo kýs.
Það er Áskell Þórisson, sem starfar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, sem rekur Lb. Hann ritstýrði Bændablaðinu í rúman áratug en áður var hann m.a. ritstjóri Dags á Akureyri og starfsmannastjóri KEA.