Íslenska bleikjan vekur hrifningu í Frakklandi

Samherji hf. tók á dögunum þátt í hinni gríðarstóru matvælasýningu Sirha í Lyon í Frakklandi þar sem kynntar voru afurðir félagsins. Viðtökur voru framar vonum hjá hinum fjölmörgu gestum sem m.a. fengu að bragða á lystilega framreiddu fersku íslensku fiskmeti. Samherji var með sýningarbás þar sem afurðir félagsins voru kynntar en Sirha er vörusýning á öllu viðkemur hótel- og veitingarekstri og er matur þar lang fyrirferðamestur.   

Að sögn Birgis Össurarsonar sölu- og markaðstjóra Samherja, gekk sýningin vonum framar.  Mjög mikill fjöldi fólks sótti hana þá 5 daga sem sýningin stóð.  Einar Geirsson meistarakokkur og eigandi veitingastaðarins RUB 23 á Akureyri, eldaði afurðir Samherja og gaf gestum og gangandi að bragða við mikla hrifningu. Birgir segir að þátttaka í sýningu sem þessari hjálpi mikið til við markaðssetningu sjávarafurða en að þessu sinni var lögð áhersla á eldisafurðir Samherja, bleikju, lúðu og sandhverfu. Þetta kemur fram á vef Samherja.

Nýjast