Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, segir að í ár sendi Íslensk verðbréf ekki út jólakort, en þess í stað hafi verið ákveðið að leggja Mæðrastyrksnefnd lið í hennar mikilvæga verkefni að styðja fjölskyldur á Eyjafjarðarsvæðinu sem standi höllum fæti. Jóna Berta Jónsdóttir og Siggerður Tryggvadóttir tóku við gjöfinni fyrir hönd Mæðrastyrksnefndar á Akureyri sem þeir Sævar og Arne Vagn Olsen, markaðs- og sölustjóri ÍV afhentu. Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar hafa þegar lagt nefndinni lið og hvetja Íslensk verðbréf alla sem eru aflögufærir til að gera slíkt hið sama. Jóna Berta Jónsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, segist vera afar þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf Íslenskra verðbréfa og að þessir fjármunir muni koma í góðar þarfir. Í þau 20 ár sem Jóna Berta hefur komið að starfi Mæðrastyrksnefndar á Akureyri hefur aldrei áður verið jafn mikil þörf fyrir aðstoð. Skjólstæðingar nefndarinnar eru á öllu Eyjafjarðarsvæðinu auk Siglufjarðar.