04. janúar, 2008 - 14:59
Fréttir
Starfsmenn Intrum á Íslandi ehf. og Domus fasteignasala á Akureyri tóku sig saman og gáfu 30 jólapakka til barna. Intrum ehf. gaf á móti
hverjum pakka 1.500 krónur í peningum og því var mótframlag Intrum 45.000 kr. í peningum. Elsa María Davíðsdóttir og Arna
Gunnarsdóttir afhentu Mæðrastyrksnefnd Akureyrar gjafirnar og peninginn og var það hún Jóna Berta Jónsdóttir sem tók við þeim.
Skrifstofa Intrum á Íslandi hefur verið starfrækt á Akureyri frá árinu 2001 og hefur fjöldi starfsmanna aukist jafnt og þétt. Þar
starfar nú tæplega tuttugu manna öflugur hópur fólks með sérhæfða menntun og reynslu á sviðum innheimtu- og
lögfræðiráðgjafar.