Fjölbreytt framboð íþrótta- og tómstundastarfs fyrir börn er í boði á Akureyri. Þrátt fyrir það eru innan við 50% barna með fjölþættan vanda, sem taka þátt í skipulögðu starfi utan skóla. Þetta kemur fram í skýrslu um þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi á Akureyri, - Greining á þátttöku barna með fötlun og aðrar áskoranir í íþrótta- og tómstundastarfi og tillögur að úrbótum.
Tvö verkefni eru í gangi sem styðja sérstaklega við þátttöku fatlaðra barna í íþróttastarfi, Íþróttafélaginn sem hófst sem tilraunaverkefni haustið 2023 og Allir með sem er samstarfsverkefni nokkurra íþróttasambanda.
Fram kom í svörum við könnuninni að 58% barna eru ekki í neinni virkni fyrir utan skóla, en 42% sækja íþrótta- eða tómstundastarf eftir skóla. Börnin fóru m.a. í boccia, sund, í tónlist, hokkí, bogfimi, fótbolta, í félagsmiðstöðvar eða tóku þátt í verkefninu Allir með.
Ástæða þess að börn tóku ekki þátt í íþrótta- eða tómstundastarfi var hjá helmingi þeirri áhugaleysi og 21% sögðust ekki fá þann stuðning sem þarf til að halda áfram. Tæp 30% nefndu aðra ástæðu, m.a. að ekki hefði fundist neitt við hæfi eða getu skorti til að stunda íþróttir. Fram kom að 57% foreldra tölu að komið væri til móts við þarfir barnanna að einhverju eða öllu leyti, en 43% tölu ekki nægilega vel stutt við bakið á börnum sem þurftu aukastuðning.
Fram kemur í skýrslunni að starfsfólk félagsmiðstöðva og þjálfarar íþróttafélaga töldu sig ekki geta komið til móts við börn sem þurfa stuðning nema að litlu leyti og telja að meira brottfall sé meðal þeirra barna en annarra. Í niðurstöðum kemur fram að skoða þurfi hvað hægt sé að gera til að styðja betur við börn með áskoranir og þurfa stuðning í íþrótta- og tómstundastarfi.
Verkefnið Íþróttafélaginn hefur yfir að ráða fjármagni út þetta ár, en óljóst hvernig því verður fylgt eftir, enda hafi ýmislegt breyst frá því það fór af stað.
Fræðslu- og lýðheilsuráð hefur lýst yfir ánægju með könnunina og leggur áherslu á að niðurstöður verði kynntar ungmennaráði og að tillögur til umbóta verði hafðar til hliðsjónar við gerð fjárhagsáætlunar 2026 í haust.