Íbúar Norðurþings nálgast 3000

Stjórnsýsluhús Norðurþings á Húsavík. Mynd/epe
Stjórnsýsluhús Norðurþings á Húsavík. Mynd/epe

Í dag, 18. maí 2017, eru íbúar Norðurþings 2.998. Það er skemmtilegur áfangi þegar íbúafjöldi í sveitarfélagi fer yfir 3.000 íbúa. Vonir standa til þess að þeim áfanga verði náð á næstu dögum.

Íbúafjöldi Norðurþing

Íbúaþróun í Norðurþingi hefur verið mjög jákvæð og hröð undanfarin misseri, en frá upphafi árs 2016 hefur íbúum fjölgað um 173. Íbúafjölgunin er í samræmi við þann mikla kraft sem einkennir samfélag og atvinnulíf í Norðurþingi. Þetta kemur fram á vef Norðurþings.

Nýjast