Í erindinu er spurt hvort brotið hafi verið á lögreglusamþykkt Akureyrarbæjar, um mengunarmál og svifryk, um umferðarmál og um
trjágróður á lóðinni. Baldvin H. Sigurðrsson og Oddur Helgi Halldórsson sátu hjá við afgreiðslu málsins. Í svari
meirihluta bæjarráðs kemur m.a. fram að samkvæmt núgildandi lögreglusamþykkt Akureyrarbæjar er farið fram á að "Ef eitthvað
slæðist eða hrynur niður á almannafæri við flutninginn, fermingu eða losun, er stjórnanda flutningstækisins skylt að hreinsa það upp
þegar í stað." Farið var fram á hreinsun við verktakann sem varð við þeirri bón.
Bæjarráð bendir á að samfara byggingarframkvæmdum verði því miður ekki komist hjá óþægindum s.s. vegna svifryks og
mengunar frá flutningabílum samfara jarðsvegsskiptum og sé því reynt að haga verklagi þannig að þau gangi hratt og vel fyrir sig. Í
umræddu tilviki var farið fram á að samhliða greftri yrði fyllt jafnóðum í grunninn til þess að minnka hættu á jarðsigi og
koma í veg fyrir hreyfingu á grunnvatnsstöðunni. Komið hefur í ljós að sig hefur ekki mælst á svæðinu við það að
nota þessa aðferðarfræði.
Varðandi umferðarmál segir í svari bæjarráðs að um býsna umfangsmikla framkvæmd sé að ræða og því ekki
óðeðlilegt að einhverjar tímabundar tafir hafi orðið á umferð við Undirhlíð vegna jarðvegsskipta meðan á þeim
stóð. Samkvæmt samtölum við verktakann var þó reynt að haga akstri þannig að hægt var að fara um Undirhlíðina á
meðan á framkvæmdum stóð. Nú er jarðvegsskiptum lokið við húsið nr. 3 og því ekki þörf á útkeyrslu
við gatnamót Undirhlíðar og Krossanesbrautar og hefur henni verið lokað en tekið skal fram að um tímabunda heimild var að ræða.
Bæjarráð bendir á að almennt sé lóðum úthlutað í því ástandi sem þær eru hverju sinni, með
þeim kostum og göllum sem þeim fylgir fyrir lóðarhafa. Þegar lóðum er úthlutað fylgir þeim oft á tíðum
gróður eins og í þessu tilviki. Samkvæmt upplýsingum framkvæmdadeildar á Akureyrarbær nú þegar mikið af
óráðstöfuðum trjám sem þurft hefur að fjarlægja víðs vegar um bæinn og ekki hefur verið plantað aftur í
bæjarlandinu. Á umræddri lóð var talsvert af öspum sem ekki var talin ástæða til að flytja á annan stað í
bæjarlandinu.