25. mars, 2008 - 10:14
Fréttir
Samanlögð áætluð aðsókn að sýningum leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands á leikárinu
2006-2007 nam laust innan við 440.000. Þessi fjöldi samsvarar því að hver landsmaður sæki leikhús 1,4 sinnum á ári, samkvæmt
upplýsingum frá Hagstofunni. Leikuppfærslur voru samtals 247 talsins og heildarfjöldi sýninga rétt um 2.800. Á síðasta leikári voru
starfrækt sjö atvinnuleikhús með aðstöðu í sex leikhúsum. Á vegum þeirra voru 13 leiksvið með um 3.000 sætum.
Leikhúsin settu 95 uppfærslur á svið hér innanlands; þar af voru leikrit flest, eða 63 talsins.
Samanlagður fjöldi sýninga var 1.224. Uppfærslur með verkum eftir íslenska höfunda voru 37, en eftir erlenda 51. Uppfærslur með verkum eftir innlenda
og erlenda höfunda voru sjö. Leikhúsgestir voru samtals 259.038, að meðtöldum samstarfsverkefnum og gestasýningum. Sýningargestum fækkaði
lítillega frá fyrra leikári, eða um nærri 3.000. Atvinnuleikhópum hefur fjölgað talsvert undanfarin ár, eða úr 22 leikárið
2000/2001 í 38. Uppfærslum á þeirra vegum hefur fjölgað að sama skapi, en á síðasta leikári færðu atvinnuleikhópar upp
á svið innanlands 79 verk samanborið við 30 á leikárinu 2000/2001. Leikrit og verk eftir innlenda höfunda eru uppistaðan í uppfærslum
atvinnuleikhópa. Sýningar atvinnuleikhópa innanlands voru 1.357 að meðtöldum sýningum í samstarfi með leikhúsum og sýningum í
skólum. Heildaraðsókn að þessum sýningum var 212.470. Sýningargestum atvinnuleikhópanna hefur fjölgað umtalsvert undangengin ár.
Á næstliðnu leikári voru starfandi 40 áhugaleikfélög víðs vegar um landið. Uppfærslur á vegum félaganna voru á
síðasta leikári 89, eða litlu fleiri en á leikárinu á undan. Tvær af hverjum þremur uppfærslum voru eftir innlenda höfunda.
Fjölmargir einstaklingar koma að uppfærslum áhugaleikfélaga á ári hverju. Samanlagður fjöldi flytjenda á síðasta leikári
var um 1.450 manns. Félögin sýndu 498 sinnum fyrir um 30.000 gesti.