03. júní, 2008 - 09:25
Fréttir
Hugrún Sigmundsdóttir settur leikskólastjóri hefur verið ráðin leikskólastjóri í Pálmholti á Akureyri. Á
Pálmholti eru rými fyrir 56 börn á þremur deildum.
Börnunum er skipt á deildir eftir aldri, og hvor deild skiptir börnunum í smærri hópa eftir aldri. Alls selur Pálmholt 448 klukkutíma á dag
og eru flest börnin í 8 tíma vistun. Nokkur börn eru 4-6 tíma á dag, en þó öll fyrir hádegi. Stöðugildi á
Pálmholti eru 13,52, en það eru kennarar á deildum, matráðar og leikskólastjóri.