Fyrirlesturinn fer fram í AkureyrarAkademíunni að Þórunnarstræti 99 og eru allir velkomnir. Í fyrirlestrinum verður sagt stuttlega frá
tveimur ferðalögum bandarískra geimfara og geimfaraefna, sumra þeirra síðar tunglfara, um hálendi Íslands í júlí 1965 og 1967,
einkum ferðalögum upp í Dyngjufjöll og Öskju en einnig í Jökulheima. Sagt verður frá aðferðum við þjálfun væntanlegra
tunglfara, áhuga íslenskra dagblaða á þessum atburðum og upplifun þeirra Íslendinga sem með þeim fóru. Auk samtíma
frásagna íslenskra dagblaða og viðtala við nokkra af þeim Íslendingum sem voru með í ferðalögunum er byggt á erlendum heimildum og
viðtali við einn af tólf tunglförum og er aðalheiti fyrirlestursins úr því viðtali.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson hefur bakkalár- og kandídatspróf frá Háskóla Íslands og doktorspróf í
menntunarfræðum frá Wisconsinháskóla í Madison. Ingólfur starfaði sem landvörður í nokkur sumur á síðari hluta 9.
áratugar síðustu aldar, frá árinu 2000 hefur hann verið formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi og situr nú
í svæðisráði norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.