Hraðamælingar og þau nelgdu.

29 km hraði sleppur naumlega til á 30 km götum.  Mynd lögreglan.
29 km hraði sleppur naumlega til á 30 km götum. Mynd lögreglan.

Lögreglan á Norðurlandi eystra hvetur þá sem ökumenn sem eiga það eftir, að huga að dekkjaskiptum, að skipta út nagladekkjunum sem fyrst! ❌❌

Í ljósi veðurspár næstu daga er algjör óþarfi að vera á nagladekkjum núna. Við höfum skilning á því að það er háannatími hjá dekkjaverkstæðum á svæðinu um þessar mundir, en ítrekum þó hér með að ökumenn beri ábyrgð á því hvernig bifreið sem þeir aka sé útbúin 

Með hækkandi sól hefur talsvert borið á hraðakstri á svæðinu og því vill lögreglan beina þeim tilmælum til ökumanna að þeir flýti sér hægt. Nú er mikið af nýjum vegfarendum í umferðinni, m.a. á reiðhjólum og bifhjólum, og því afar mikilvægt að sýna aðgæslu. Sérstaklega er viðbúið að reiðhjólamenn verði áberandi í umdæminu næstu vikurnarnar og mánuði. Sem fyrr er nauðsynlegt að allir í umferðinni sýni tillitssemi því þá gengur allt betur og öruggar fyrir sig.

Þá upplýsist það einnig hér með að lögreglumenn hjá embættinu munu næstu daga, sem og í allt sumar, halda uppi öflugu hraðaeftirliti hvort sem það er innanbæjar eða utan þéttbýlis. 🚨🚔

Góða helgi ☀️

Þessar vinsamlegu ábendingar eru á Fb síðu lögreglu. 


Athugasemdir

Nýjast