Hópurinn á Hlíð í öðru sæti og hjólaði tæplega 11 þúsund kílómetra

Alls voru 82 einstaklingar í liði Hlíðar sem hafnaði í öðru sæti í hjólakeppninni World Roads for Se…
Alls voru 82 einstaklingar í liði Hlíðar sem hafnaði í öðru sæti í hjólakeppninni World Roads for Seniors. Myndin er tekin þegar viðurkenningar voru veittar fyrir góðan árangur.

mth@vikubladid.is

Aðalheiður

Hjólakeppninni World Road for Seniors er nýlega lokið. Alls tóku þátttakendur frá sjö löndum þátt að þessu sinni og tefldu fram 222 liðum með 5670 manns innanborðs. Íbúar á Heilsuvernd Hjúkrunarheimili á Hlíð á Akureyri tóku þátt og höfnuðu í öðru sæti sem er vel af sér vikið.

Hjólin voru þétt setin allan þann mánuð sem keppni stóð yfir, en alls tóku 82 einstaklingar á Hlíð þátt í keppninni og lögðu sitt af mörkum fyrir liðið. Samtals hjólaði hópurinn 10.979,4 kílómetra þann tíma sem keppni stóð yfir.

Af þessum 82 einstaklingum voru átta sem hjóluðu yfir 100 kílómeta. Elst af þeim var Aðalheiður Einarsdóttir sem varð 98 ára í febrúar síðastliðnum og hjólaði hún 116 kílómetra. Hún var ein af nokkrum sem tóku þátt í keppninni í fimmta sinn. Fimm keppendur höfnuðu í efstu 11 sætunum af öllum keppendum og fjórir þeirra hjóluðu yfir 1000 kílómetra. Tveir keppendur enduðu í 3. sæti. Þau Snjólaug Jóhannsdóttir sem fór 1363 kílómetra og Bogi Þórhallsson sem hjólaði 2451.5 kílómetra.

Metnaðurinn, krafturinn, gleðin og sprellið

„Metnaðurinn, krafturinn, gleðin og sprellið sem var við líði allan tímann varð til þess að þessum góða árangri var náð, en einnig sú mikla hvatning sem keppendur fengu frá starfsfólki í sjúkraþjálfun sem stóðu eins og klettar á hliðarlínunni og hvöttu fólk af miklum krafti. Við óskum þeim öllum hjartanlega til hamingju með frábæran árangur, gott silfur, gulli betra á svo sannarlega vel við,“ segir á facebooksíðu Heilsuverndar Hjúkrunarheimila.

 


Athugasemdir

Nýjast