21. janúar, 2010 - 13:16
Fréttir
Hjálparsveitin Dalbjörg í Eyjafjarðarsveit hefur fest kaup á tveimur nýjum vélsleðum af gerðinni Arctic Cat Crossfire 8 Sno Pro. Þeir koma
í stað eldri vélsleða sem þegar hafa verið seldir. Kaupin á nýju vélsleðunum gengu hratt og vel fyrir sig með hjálp
góðra manna.
Nýju vélsleðarnir eru komnir í hús og vinnan við að gera þá útkallshæfa fer á fullt. Fyrirtækið Arctic Sport er
innflutningsaðili Arctic Cat vélsleða en þeir voru afhentir í húsnæði K2M, umboðsaðila á Akureyri.