Pilturinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Hann lenti með höfuðið í götunni en það varð honum til happs að hann var með reiðhjólahjálm á höfðinu og kom hjálmurinn í veg fyrir meiriháttar meiðsli. Höggið var svo mikið að hluti hjálmsins brotnaði. Eftir aðhlynningu á slysadeild var pilturinn lagður inn á barnadeild FSA þar sem frekari rannsókn átti að fara fram. Pilturinn er ekki talinn hættulega slasaður. Lögreglan á Akureyri og slökkvilið Akureyrar hvetja alla til að vera með reiðhjólahjálm og gæta sérstakrar varúðar við hjólreiðar.