Hann hefur auk þess gengt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Akureyrarbæ. Kjörtímabilið 2002 - 2006 var Hermann varabæjarfulltrúi og sat
í skólanefnd sem fulltrúi Samfylkingarinnar. Hermann Jón situr í ráðgjafanefnd jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og launanefnd
sveitarfélaga fyrir hönd Sambands Íslenskra sveitarfélaga.
Hermann Jón er fæddur 13. apríl 1959. Hann lauk stúdentsprófi frá MA og nam síðan sálfræði við Háskóla
Íslands og Texas Tech University og kennslufræði við HÍ. Hann hefur auk þess lagt stund á stjórnunarnám við kennaradeild
Háskólans á Akureyri. Hermann hefur lengst af starfað við kennslu, námsráðgjöf og stjórnun í Verkmenntaskólanum á
Akureyri. Eiginkona Hermanns er Bára Björnsdóttir leikskólakennari og eiga þau þrjú börn.