18. júní, 2010 - 10:09
Fréttir
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tólf einstaklinga Fálkaorðunni við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum í gær. Í hópi þeirra sem hlutu orðuna að þessu sinni er Helena Eyjólfsdóttir söngkona á Akureyri,
en hlaut riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar.
Þeir sem hlutu orðuna í stafrófsröð eru:
- Edda Erlendsdóttir píanóleikari, Frakklandi, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar tónlistar
- Gísli Örn Garðarsson leikstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar leiklistar
- Guðrún Guðmundsdóttir húsmóðir, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag á sviði útsaums og þjóðlegrar
menningar
- Guðrún Nordal forstöðumaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslenskra fræða
- Helena Eyjólfsdóttir söngkona, Akureyri, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar
- Hjalti Pálsson ritstjóri og fyrrverandi héraðsskjalavörður, Skagafirði, riddarakross fyrir framlag til héraðssögu, fræða og
menningar
- Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslensks atvinnulífs og
útflutnings
- Jónas Þórir Þórisson forstöðumaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til líknarmála og hjálparstarfs
- Kristbjörn Þór Árnason skipstjóri, Húsavík, riddarakross fyrir sjósókn og störf í sjávarútvegi
- Magðalena Sigríður Hallsdóttir fyrrverandi formaður Kvenfélags Sjúkrahúss Siglufjarðar, Siglufirði, riddarakross fyrir störf í
þágu aldraðra og sjúkra
- Marga Ingeborg Thome prófessor, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismenntunar og rannsókna
- Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt, Reykjavík, riddarakross fyrir frumherjastörf við skipulag og mótun umhverfis