Helena hlaut riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi tólf einstaklinga Fálkaorðunni við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Í hópi þeirra sem hlutu orðuna að þessu sinni er  Helena Eyjólfsdóttir söngkona á Akureyri, en hlaut riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar.  

Þeir sem hlutu orðuna í stafrófsröð eru: 

  1. Edda Erlendsdóttir píanóleikari, Frakklandi, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskrar tónlistar
  2. Gísli Örn Garðarsson leikstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar leiklistar
  3. Guðrún Guðmundsdóttir húsmóðir, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag á sviði útsaums og þjóðlegrar menningar
  4. Guðrún Nordal forstöðumaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslenskra fræða
  5. Helena Eyjólfsdóttir söngkona, Akureyri, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar
  6. Hjalti Pálsson ritstjóri og fyrrverandi héraðsskjalavörður, Skagafirði, riddarakross fyrir framlag til héraðssögu, fræða og menningar
  7. Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslensks atvinnulífs og útflutnings
  8. Jónas Þórir Þórisson forstöðumaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til líknarmála og hjálparstarfs
  9. Kristbjörn Þór Árnason skipstjóri, Húsavík, riddarakross fyrir sjósókn og störf í sjávarútvegi
  10. Magðalena Sigríður Hallsdóttir fyrrverandi formaður Kvenfélags Sjúkrahúss Siglufjarðar, Siglufirði, riddarakross fyrir störf í þágu aldraðra og sjúkra
  11. Marga Ingeborg Thome prófessor, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismenntunar og rannsókna
  12. Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt, Reykjavík, riddarakross fyrir frumherjastörf við skipulag og mótun umhverfis

Nýjast