Heimsókn forseta Íslands í Norðurþing hafin

Forsetinn ásamt ungum aðstoðarmanni býr sig undir að klippa á borða. Eliza Reid og Sigríður Valdís S…
Forsetinn ásamt ungum aðstoðarmanni býr sig undir að klippa á borða. Eliza Reid og Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir leikskólastjóri, fylgjast spenntar með. Mynd: JS

Í morgun klukkan 8.30 heimsóttu forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og frú Eliza Reid Hveravelli  í Reykjahverfi og kynntu sér vistvæna ræktun grænmetis og þar með var opinber heimsókn forsetans í Norðurþing hafin.

Frá Reykjahverfi var haldið til Húsavíkur og litið inn á leikskólann Grænuvöllum þar sem nemendur og starfsfólk tóku vel á móti góðum gestum. Þar var brugðið á leik og forsetahjónin og nemendur freistuðu þess að leysa hin ýmsu vandamál heimsins og varð bara nokkuð vel ágengt. Þá klippti forsetinn ásamt ungum aðstoðarmanni á borða og opnaði þar með formlega nýja deild á leikskólanum sem ber það hátignarlega nafn, Róm.

Nú tekur við viðamikil dagskrá forsetahjónanna í dag og á morgunn og verðu komið víða við eins og áður hefur verið rakið á vikudagur.is. JS

Nýjast