Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018 gerir ráð fyrir þéttingu byggðar á reitnum, nýrri íbúðarbyggð með þéttleika allt að 25 íb/ha. Samkvæmt því er heimilt að byggja 57 íbúðir á svæðinu. Eins og fram hefur komið hefur byggingarfyrirtækið SS Byggir verið að leita eftir leyfi bæjaryfirvalda til að byggja tvö 7 hæða fjölbýlishús fyrir allt að 70 íbúðir á umræddu svæði.
Jóhannes Árnason óskaði bókað á fundi skipulagsnefndar. "Ég greiði atkvæði gegn þessari afgreiðslu. Ég tek undir stóran hluta þeirra athugasemda þar sem því er haldið fram að um sé að ræða of stórkarlalegar byggingar. Þótt yfirleitt sé æskilegt að nýta byggingarland vel þá er hætta á því að svo stór hús verði yfirþyrmandi. Framkvæmdir geta valdið umtalsverðri hættu á skemmdum á mannvirkjum og geta breytt ásýnd svæðisins alls mjög mikið. Eðlilegast væri að hafna þeirri tillögu sem hér er til umfjöllunar og fela skipulagsdeild Akureyrarbæjar að útbúa hóflegri tillögu um byggð á svæðinu."
Í bókun skipulagsnefndar kemur jafnframt fram að haldnir voru tveir opnir kynningarfundir 22. ágúst 2007 og 22. apríl 2008 þar sem tillögur voru
kynntar íbúum hverfisins sem og öðrum. Einnig óskaði hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis eftir fundi með skipulagsstjóra þ. 28. mars 2007
þar sem m.a. drög að tillögunni voru kynnt.
5 einstaklingar sendu inn athugasemdir og 2 undirskriftarlistar með alls 457 undirskriftum bárust á athugasemdartíma. Við yfirferð kom í ljós að
a.m.k. 37 aðilar voru skrifaðir á báðum listum, 10 voru yngri en 18 ára og 6 með lögheimili utan Akureyrar.
Í viðtalstíma bæjarfulltrúa 19. feb. 2008, áður er deiliskipulagstillagan var auglýst, mótmæltu átta manns hæð
fjölbýlishúsanna við Undirhlíð. Þau voru jákvæð gagnvart lægri íbúðabyggð og þéttingu byggðar
á reitnum.
1) Arngrímur Kristjánsson, Stórholti 2. Viðtalstími bæjarfulltrúa dags. 27. mars 2008.
2) Hallgrímur Gíslason, Skarðshlíð 34b. 30. apríl 2008.
3) Halldór Valdimar Pétursson dags. 6. maí 2008.
4) Alice Emma Zackrison dags. 6. maí 2008.
5) Valdimar Pálsson, formaður hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dags. 7. maí 2008.
6) Undirskriftarlisti með 264 undirskriftum dags. 9. maí 2008.
7) Undirskriftarlistar, 8 eintök, með samtals 249 undirskriftum dags 9. maí 2008.