11.desember - 18.desember - Tbl 50
Harðbakur málaður og yfirfarinn í Slippnum á Akureyri
Togarinn Harðbakur EA 3 heldur senn til veiða eftir ýmsar endurbætur og uppfærslur í Slippnum á Akureyri, auk þess sem skipið var heilmálað.
Harðbakur er fimm ára gamalt skip, smíðað í Vard-Aukra skipasmíðastöðinni í Noregi. Skipið kom til Akureyrar 9. nóvember 2019 og strax í kjölfarið tók Slippurinn við því, þar sem settur var vinnslubúnaður um borð. Harðbakur er 29 metra langur og 12 metra breiður. Skipið er gott í alla staði, bæði hvað varðar vinnslubúnað og aðbúnað áhafnar.
Fimm ára klössun
Guðmundur Ingvar Guðmundsson skipstjóri segir að vinnan um borð hafi gengið samkvæmt áætlun.
„ Þetta hefur allt saman gengið vel og við erum að sjá fyrir endann á verkefninu. Skipið var heilmálað, búnaður á vinnsludekki og öryggisbúnaður hafa verið endurbætt og fiskleitartæki uppfærð. Sömuleiðis hefur verið unnið að endurbótum í matsal og vistarverum skipverja, þannig að þetta er nokkuð stórt verkefni. Auk ýmissa verkþátta var um að ræða svokallaða fimm ára klössum, enda er Harðbakur fimm ára um þessar mundir,“ segir Guðmundur Ingvar skipstjóri.
Margir kallaðir til
Bjarni Pétursson sviðsstjóri hjá Slippnum segir að endurbæturnar hafi verið vel undirbúnar og verkinu ljúki væntanlega á allra næstu dögum.
„ Lykilatriði er að undirbúa alla verkþætti sem best, enda margir sérhæfðir starfsmenn sem kallaðir eru til, bæði hérna hjá Slippnum og þjónustufyrirtækjum, auk starfsmanna Samherja. Þetta er mikil teymisvinna og allir leggjast á eitt um að skila góðu verki á umsömdum tíma,“ segir Bjarni.
Er ekki timi til komin að tengja?
Veiðarfærin um borð í lok vikunnar
Guðmundur Ingvar hefur verið skipstjóri frá því Harðbakur kom nýr fyrir sléttum fimm árum.
„Þetta er góður bátur til síns brúks og þessar endurbætur sem gerðar hafa verið eru um margt kærkomnar. Í lok vikunnar tökum við svo veiðarfærin um borð og prófum allt saman áður en alvaran hefst á nýjan leik,“ segir Guðmundur Ingvar Guðmundsson skipstjóri.
,,Þetta er góður bátur til síns brúks" segir Guðmundur skipsstjóri Mynd Þorgeir Baldursson
Heimild www.samherji.is