16. desember, 2008 - 16:03
Fréttir
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2009 er þessa stundina til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Þar kemur m.a. fram
að tekjur aðalsjóðs verða rúmir 9,8 milljarðar króna en heildargjöld tæpir 10,7 milljarðar króna. Heildartekjur
samstæðureiknings Akureyrarbæjar eru áætlaðar tæpir 14,6 milljarðar króna en halli á samtæðunni er áætlaður 1,0
milljarður króna.
Fjárhagsáætlunin að þessu sinni er frábrugðin fyrri áætlunum að því leiti að hún var unnin af oddvitum allra
flokka í bæjarstjórn ásamt starfsmönnum. Haft var að leiðarljósi að verja grunnstoðir í þjónustu bæjarfélagsins
í þeim efnahagsþrengingum sem nú ganga yfir þjóðfélagið. Sérstaklega var horft til þess að halda vel utan um starfsemi grunn- og
leikskóla bæjarins, sem og félagsþjónustuna, og einnig að verja störf og mannaflsfrekar framkvæmdir eftir því sem kostur er. Í
ljósi stöðunnar er betra að búa við tímabundinn hallarekstur en að skera niður í mannafla og framkvæmdum. Það er gert í
þeirri von að staðan verði betri á árinu 2010, að mati bæjaryfirvalda.
Gert er ráð fyrir að síðari umræða verði 20. janúar 2009. Oddvitar flokkanna í bæjarstjórn, að Jóhannesi Bjarnasyni
framsóknarmanni undanskildum, kynntu helstu forsendur í áætlunininni.
- 1. Forsendur áætlunarinnar er að hér verði 7% meðalverðbólga á árinu og að íbúum fjölgi um 200 manns.
- 2. Tekjur aðalsjóðs verða rúmir 9,8 milljarðar en heildargjöld tæpir 10,7 milljarðar. Fjármunatekjur aðalsjóðs eru
áætlaðar tæpir 1,2 milljarðar.
- 3. Gert er ráð fyrir útsvarsprósentu 13,03% í fyrirliggjandi áætlun en tillaga verður gerð í bæjarstjórn um að
hækka útsvarið í 13,28%. Álagningaprósenta fasteigna-skatta hækkar um 10% en ekki er gert ráð fyrir að stofn fasteignamats hækki.
Skerðing jöfnunarsjóðs er áætluð 150 m.kr. milli ára.
- 4. Leikskólagjöld og frístund hækka ekki en almennt hækka gjaldskrár um 10%, þar má nefna hækkun á fæði í leik- og
grunnskólum, Hlíðarfjalli og Sundlaug. Sorphirðugjald hækkar um 2.700 kr. Þrátt fyrir miklar almennar kostnaðarhækkanir er reynt að stilla
hækkunum á gjaldskrám mjög í hóf.
- 5. Launanefnd sveitarfélaga hefur nú lokið kjarasamningum við nær alla hópa starfsmanna og leiða þeir til töluverðrar hækkunar
launagreiðslna eða að meðaltali um 20.300 kr. pr. mánuð miðað við fullt starf. Laun bæjarstjóra, bæjarfulltrúa og nefndarfólks
verða lækkuð um 10%. Dregið verður úr yfirvinnu þar sem það er mögulegt. Ekki verða uppsagnir meðal starfsmanna bæjarins en öll
störf sem losna verða skoðuð sérstaklega og reynt að forðast allar nýráðningar.
- 6. Í almennum rekstrargjöldum stofnana og deilda er skorið niður eins og hægt er og horft þá sérstaklega til þátta eins og
ferðakostnaðar, skrifstofuvara, kaupa á áhöldum og munum o.s.frv. Samtals er áætlaður sparnaður hér 200-300 milljónir króna.
- 7. Framkvæmdaáætlun ársins 2009 hefur verið endurskoðuð. Opnun Hofs er frestað til mars/apríl 2010 og sama gildir um opnun
íþróttamiðstöðvar við Giljaskóla. Framkvæmdir á KA-velli eru settar í bið, en áfram er ráðgert að opna
Naustaskóla haustið 2009. Framkvæmdum vegna Landsmóts UMFÍ í júlí 2009 verður haldið áfram samkvæmt áætlun.
Samtals eru framkvæmdir áætlaðar tæpir 1,8 milljarðar kr. í Aðalsjóði og tæpir 2,6 milljarðar í samstæðunni allri og
er það nokkur lækkun frá þriggja ára áætlun þar sem gert var ráð fyrir framkvæmdum fyrir röska 3,0 milljarða
króna á árinu 2009.
- 8. Heildartekjur samstæðureiknings Akureyrarbæjar eru áætlaðar tæpir 14,6 milljarðar króna en halli er áætlaður 1,0
milljarður kr. á samstæðunni. Þarna munar mest um fjármagnskostnað Fasteigna Akureyrarbæjar en gert er ráð fyrir að hann nemi tæpum 2
milljörðum á árinu 2009. Halli á rekstri Fasteigna Akureyrarbæjar er áætlaður rúmir 1,2 milljarðar króna.
- 9. Afborganir lána nema 2,3 milljörðum og ný lán verða tekin fyrir rúman 3,1 milljarð í samstæðunni allri svo mismunurinn er
skuldaaukning um rúmar 800 milljónir króna. Handbært fé frá rekstri verður tæpar 950 milljónir.