Hald lagt á fíkniefni á Akureyri

Lögreglan á Akureyri, í samvinnu við sérsveit Ríkislögreglustjóra á Akureyri, lagði hald á tæplega 250 grömm af hassi auk lítilræðis af kókaíni og sterum í þremur fíkniefnamálum um helgina. Á föstudag handtók lögreglan tvo menn og reyndist annar þeirra hafa 13 grömm af hassi á sér sem hann hafði falið á milli rasskinnanna. Í framhaldinu fór lögreglan í tvær húsleitir og fundust 200 grömm af hassi á dvalarstað annars mannsins. Mennirnir tveir eru grunaðir um að hafa ætlað að selja og dreifa efnunum á Akureyri. Auk ofangreinds máls komu tvö önnur fíkniefnamál til kasta lögreglunnar þar sem hald var lagt á um 30 grömm af hassi í tveimur húsleitum auk smáræðis af kókaíni og sterum. Þrír menn voru handteknir og játuðu tveir þeirra að hafa ætlað efnin til sölu.

Nýjast