Lögreglan á Akureyri, í samvinnu við sérsveit Ríkislögreglustjóra á Akureyri, lagði hald á tæplega 250 grömm af hassi auk
lítilræðis af kókaíni og sterum í þremur fíkniefnamálum um helgina. Á föstudag handtók lögreglan tvo menn og reyndist
annar þeirra hafa 13 grömm af hassi á sér sem hann hafði falið á milli rasskinnanna. Í framhaldinu fór lögreglan í tvær
húsleitir og fundust 200 grömm af hassi á dvalarstað annars mannsins.
Mennirnir tveir eru grunaðir um að hafa ætlað að selja og dreifa efnunum á Akureyri. Auk ofangreinds máls komu tvö önnur fíkniefnamál til
kasta lögreglunnar þar sem hald var lagt á um 30 grömm af hassi í tveimur húsleitum auk smáræðis af kókaíni og sterum.
Þrír menn voru handteknir og játuðu tveir þeirra að hafa ætlað efnin til sölu.