Hagkaup vill byggja á lóð Sjafnar við Austursíðu

Skipulagsnefnd Akureyrar hefur borist fyrirspurn um hvort byggja megi Hagkaupsverslun á lóð Sjafnar við Austursíðu. Í bókun skipulagsnefndar er tekið undir áform fyrirtækisins um uppbyggingu matvöruverslunar á reitnum og hefur skipulagsstjóra verið falið að gera aðalskipulagsbreytingu í samræmi við tillöguna. Umsækjanda er heimilt í framhaldi af því að gera tillögu að deiliskipulagi reitsins. Eins og kunnugt er stóðu væntingar Hagkaupsmanna til þess að byggja verslunarhúsnæði á svæði við Akureyrarvöll.

Nýjast