GV Gröfur buðu lægst í framkvæmdir í Eyjafjarðarsveit

Fyrirtækið G.V. Gröfur átti lægsta tilboð í verkið Reykárhverfi 4 - gatnagerð lagnir en tilboðin voru opnuð á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar í dag. Tilboð GV Grafa var jafnframt það eina sem undir kostnaðaráætlun.

Eftirfarandi tilboð bárust:
Tilboðsgjafi                 Tilboð                 % af áætlun
Eiríkur Rafnsson         26.600.000             128,52%
G. Hjálmarsson ehf.    26.300.000             127,07%
G.V. Gröfur hf.            19.857.000               95,94%
Finnur ehf                  23.503.658              113,56%

Kostnaðaráætlun kr. 20.697.500 100,00%. Reiknað er með að framkvæmdir geti hafist á næstu dögum.

Nýjast