Gunnar Líndal hættir sem bæjarfulltrúi á Akureyri

Gunnar Líndal oddviti L-listans við síðustu sveitarstjórnarkosningar hefur ákveðið að láta af störfum sem bæjarfulltrúi á Akureyri. Ástæðan er breyttar forsendur en Gunnar starfar sem forstöðumaður rekstrar á Sjúkrahúsinu á Akureyri og mun fyrir hönd sjúkrahússins leiða byggingu nýrrar legudeildarálmu sem ljóst varð nýlega að fer í gang af fullum krafti á næstunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá L-listanum.

„Ég vil gefa mig 100% í þau verkefni sem ég tek að mér og ég sé að það getur ekki farið saman að vera oddviti í bæjarstjórn og sinna svo veigamiklu verkefni á Sjúkrahúsinu. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að leiða L-listann í síðustu kosningum þar sem við fengum þrjá menn kjörna í bæjarstjórn og ég óska L-listanum og samstarfsfólki mínu í bæjarstjórn alls hins besta, segir Gunnar.

Elma Eysteinsdóttir sem skipaði annað sætið á listanum verður nú oddviti. Elma verður áfram formaður velferðarráðs og fulltrúi í fræðslu- og lýðheilsuráði fyrst um sinn en mun taka við formennsku í bæjarráði í framhaldinu.

„Þetta verkefni kemur óvænt upp í hendurnar á mér og tek því með þakklæti og eftirvæntingu. Ég hlakka til að leiða starf L-listans og við munum áfram vinna af lífi og sál á vettvangi bæjarstjórnar Akureyrar að því að gera góðan bæ ennþá betri,“ segir Elma.

Halla Björk Reynisdóttir skipaði þriðja sæti á listanum, hún er formaður skipulagsráðs og verður einnig formaður bæjarráðs fyrst um sinn. Andri Teitsson skipaði fjórða sæti á listanum og hann kemur nú inn sem aðalmaður í bæjarstjórn og hann verður áfram formaður Umhverfis- og mannvirkjaráðs.


Athugasemdir

Nýjast