Slökkviliðið hafði mikinn viðbúnað, fór af stað með 3 dælubíla með 6 mönnum og um 19 tonn af vatni meðferðis.
Ennfremur var kallaður út viðbótarmannskapur til að manna slökkvistöð og vera tilbúinn til aðstoðar ef þyrfti. Þegar lögregla
kom á staðinn kom í ljós að ábúandi var að brenna rusli og taldi sig hafa leyfi til brunans. Það leyfi hafði hins vegar ekki
borist slökkviliði né vakthafandi lögreglu og verður það mál kannað nánar. Útkall sem þetta kostar talsvert fé og
mikilvægt að ekki sé verið að stefna útkallsliði slökkviliðs að óþörfu í slíkt, segir á vef
slökkviliðsins.
Þetta er ekki fyrsta útkallið af þessu tagi. Það getur ekki verið eðlilegt að ábúendur til sveita losi sig við rusl eða annan
úrgang með brennslu á víðavangi. Slíkt veldur ætíð hættu á alvöru eldsvoðum og óþarfa
útköllum slökkviliðs. Í þessu tilfelli var vindur af suðri og í slíku veðri er ávallt meiri hætta á
útbreiðslu elds. Ennfremur má spyrja hvort eðlilegt sé að standa að slíku um miðja nótt á dimmasta tíma ársins, segir
ennfremur á vef slökkviliðsins.