Gróðureldar á Akureyri

Mynd/aðsend
Mynd/aðsend
Eldur kviknað í gróðri á bökkum Glerár á Akureyri á níunda tímanum í kvöld, það var Rúv sem greindi frá

Eldurinn kviknaði á grónu svæði austan Hlíðarbrautar, vestan við háskólann.

Samkvæmt upplýsingum sem Rúv hefur eftir  lögreglu hefur slökkvilið náð tökum á eldinum og er slökkvistarfi við það að ljúka. Um tíma voru íbúar í Efri brekkunni á Akureyri beðnir um að loka gluggum vegna mikils reyks, en þau tilmæli eiga ekki við lengur.


Athugasemdir

Nýjast