Göngudeild geðþjónustu SAk - Miklar umbætur á skömmum tíma

Unnið hefur  verið að uppbyggingu og endurskipulagningu á þjónustu dag- og göngudeildar geðþjónustu …
Unnið hefur verið að uppbyggingu og endurskipulagningu á þjónustu dag- og göngudeildar geðþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri undanfarnar vikur Mynd : SAk.is

Unnið hefur  verið að uppbyggingu og endurskipulagningu á þjónustu dag- og göngudeildar geðþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri undanfarnar vikur.  Umbæturnar voru vandaðar og vel ígrundaðar og kröfðust m.a. tímabundinnar skerðingar á þjónustunni.

„Það hefur verið ánægjulegt að upplifa kraftinn í starfsfólki og sjá hversu miklar umbætur er hægt að ráðast í á skömmum tíma sem mun skila sér í skýrara verklagi og bættri þjónustu til framtíðar,“ segir Erla Björnsdóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs á vefsíðu SAk

Þó svo að umbótahópar séu enn að störfum eru umbætur nú þegar sýnilegar svo sem mótun nýrra verkferla, aukin þverfagleg samvinna og breyting á mönnun. Starfsemi dag – og göngudeildar geðþjónustu SAk mun smá saman komast á fullt skrið miðað við mönnun deildarinnar.

„Við höfum trú á teyminu sem vinnur að þessu verkefni og fela breytingarnar í sér ýmis tækifæri til uppbyggingar og þátttöku í spennandi verkefnum í samvinnu við aðrar fagstéttir. Því tengdu þá erum við að auglýsa eftir félagsráðgjafa, sálfræðingi, iðjuþjálfa og hjúkrunarfræðingum í bráðateymi geðþjónustu, en það er nýtt starf til að efla eftirfylgd bráðamála innan geðþjónustu. Störfin eru tilvalin fyrir meðferðaraðila sem vilja breyta til í starfi og takast á við nýjar áskoranir í lærdómsríku starfsumhverfi,“ segir Erla Björnsdóttir framkvæmdastjóri mannauðssviðs.


Athugasemdir

Nýjast