Jólaskreytingar og jólaseríur utan dyra hafa verið nánast óþarfar síðustu daga, a.m.k. á Norðurlandi. Því dag eftir dag hafa glitský brugðið á leik á himinhvolfinu og hin litríku ljós á jörðu niðri hafa fallið í skuggann af þeim – ef hægt er að tala um skugga af svo björtum og litríkum fyrirbærum sem glitskýin er.
Þessi mynd var tekin á Garðarsbrautinni á Húsavík fyrir fáeinum mínútum. Tignarlegt glitský siglir þarna á milli drungalegra óveðursskýja og götuljósið góða verður harla tilkomulítið í samanburðinum. JS