Gjaldskrár leik- og grunnskóla lækkaðar í Hörgársveit

Um áramót tók 4,9% hækkun á gjaldskrá í leik- og grunnskólum í Hörgársveit gildi. Sveitarstjórn ákva…
Um áramót tók 4,9% hækkun á gjaldskrá í leik- og grunnskólum í Hörgársveit gildi. Sveitarstjórn ákvað í dag í tengslum við nýgerða kjarasamninga að "lækka hækkunina" niður í 3,5%. Ný gjaldskrá tekur gildin 1. apríl. Mynd á vefsíðu Álfasteins.

Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundi sínum 21. mars 2024 að í tengslum við kjarasamninga verði gjaldskrár er varða leikskóla og grunnskóla lækkaðar frá því sem áður hafði verið ákveðið. Um áramót var samþykkt að gjaldskrá hækkaði um 4,9% á milli ára en á fundi sveitarstjórnar í dag var ákveðið að hækkunin næmi 3,5%.Þessi breyting tekur gildi 1. apríl 2024.

Á fundi sveitarstjórnar Hörgárbyggðar lá fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga, þar sem m.a. er áskorun til sveitarfélaga í tengslum við yfirlýsingu sambandsins og ríkisstjórnarinnar vegna nýrra kjarasamninga.

„Sveitarstjórn Hörgársveitar fagnar því að aðilar á vinnumarkaði hafi sameinast um skynsamlega langtíma kjarasamninga með áherslu á minni verðbólgu, lægri vexti, aukinn fyrirsjáanleika og þar með að skapa skilyrði fyrir stöðugleika í íslensku efnahagslífi,“ segir í bókun sveitarstjórnar Hörgársveitar.

„Sveitarstjórn minnir á að Hörgársveit tók þegar í fjárhagsáætlun ársins 2024 ákvörðun um að gjaldskrár myndu hækka minna en spár um þróun verðlags gerðu ráð fyrir.
Sveitarstjórn samþykkti að í tengslum við kjarasamninga verði gjaldskrár er varða leikskóla og grunnskóla lækkaðar úr því að hækka um 4,9% milli áranna 2023 og 2024 í að hækkunin verði 3,5%.

Vilji til að bjóða gjaldfrjálsar skólamáltíðir
„Sveitarstjórn lýsir vilja til að bjóða upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskóla frá haustinu 2024 náist ásættanleg niðurstaða um útfærslu þess og vinna áfram að öðrum þáttum samninganna sem snúa að sveitarfélögunum,“ segir í bókuninni og var sveitarstjóra falið að vinna að undirbúning þeirra verkefna sem framundan eru í samræmi við væntanlegar leiðbeiningar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, sem verða í kjölfarið tekin til afgreiðslu í sveitarstjórn.




Athugasemdir

Nýjast