Vel merkt Vinnsluhús ÚA Myndir samherji.is og úr bókinni ,, Steinn undir framtíðarhöll"
Á heimasíðu Samherja birtist i morgun skemmtileg skrif um tilurð hins velþekka firmamerki Útgerðarfélags Akureyringa, þau eru birt hér með leyfi.
Einfalt og stílhreint firmamerki Útgerðarfélags Akureyringa er vel þekkt í hugum landsmanna.
Þrátt fyrir tískusveiflur í hönnun firmamerkja hefur merki ÚA haldist óbreytt enda, lýsir það með skýrum og hnitmiðuðum hætti starfsemi félagsins. Merkið samanstendur af formföstum línum með upphafsstöfum Útgerðarfélags Akureyringa - ÚA - og akkeri skips, sem er klassiskt tákn sjávarútvegs. Einnig er akkeri gjarnan notað sem tákn um traust og stöðugleika, bæði í ritmáli og listsköpun.
Höfundur firmamerkisins er Gísli Konráðsson, sem var framkvæmdastóri ÚA í nærri fjóra áratugi, frá 1958 til 1989.
Ekki sáttur
Í upphafi báru togarar félagsins ekki annað merki en stafina AK er voru fléttaðir saman á reykháfum skipanna. „Gísla þótti þetta heldur ljótt og teiknaði því nýtt merki fyrir félagið sem enn lifir góðu lífi,“ segir í bókinni Steinn undir framtíðar höll eftir Jón Hjaltason sagnfræðing er út kom í tengslum við 50 ára afmæli félagsins árið 1995.
Man vel eftir AK stöfunum
Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja þekkir vel til starfa Gísla Konráðssonar sem framkvæmdastjóra ÚA. Faðir Kristjáns, Vilhelm Þorsteinsson, var framkvæmdastjóri ÚA ásamt Gísla Konráðssyni í aldarfjórðung, frá árinu 1964 til 1992.
„Þeir voru á ýmsan hátt ólíkir en afskaplega samstíga sem stjórnendur. Félagið var í upphafi þessa samstarfs tæknilega gjaldþrota en með samstilltu átaki allra og útsjónarsemi tókst að koma fyrirtækinu á réttan kjöl. Ég var ekki hár í loftinu þegar faðir minn kom í land og gerðist framkvæmdastjóri við hlið Gísla Konráðssonar. Ég man vel eftir AK stöfunum á reykháfum ÚA skipanna og get heilshugar tekið undir álit Gísla að ekki hafi verið vanþörf á betri og fágaðri merkingu.“
Kaldbakur EA 1 var fyrsti togari félagsins. AK stafirnir á reykháfnum eru áberandi.
Fyrsta ringó-mótið var haldið á Akureyri fyrir skemmstu undir formerkjum Virkra Virkra efri ára og Félags eldri borgara á Akureyri. Fór það fram í Íþróttahöllinni og mættu rúmlega 50 glaðir þátttakendur 60 ára og eldri.
Hymnodia fagnar sumri með gullfallegri tónlist að kvöldi miðvikudagsins 22. maí nk. Á dagskrá verður barokk eftir tékkneska tónskáldið František Tůma, tónlist frá miðri síðustu öld eftir Svíann Lars-Erik Larsson og ný tónlist eftir Sigurð Sævarsson, m.a. verk sem hann samdi fyrir Hymnodiu
Þegar líður að starfslokum er óhjákvæmilega horft yfir farinn veg. Farsæl 38 ár við kennslu. Samkvæmt rannsóknum stendur skólakerfi bókaþjóðarinnar afar illa á köflum. Lestrarfærni og lesskilningur er allt of lélegur. Nú legg ég brátt frá mér límstiftið og skærin. Af hverju nefni ég þessa tvo hluti? Vegna þess að námsefnisskortur í íslenskum skólum hefur allan minn starfsaldur verið mikill. Allir vita að ef árangur á að nást í einhverju þá þarf æfingu og hvatningu. Þetta skilja allir þegar talað er um íþróttir og tónlist, en þegar talað er um lestur, móðurmálið, stærðfræði og náttúrufræði er farið í vörn. „Æfingin drepur meistarann“ sagði eitt sinn óöruggur og meðvirkur kennari í mín eyru og átti við að endurtekningar væru af hinu illa.
Flest þekkjum við einhvern sem á í deilum við aðra manneskju þar sem erfitt virðist vera að finna sameiginlega lausn. Í síðasta þætti 2. seríu af heilsaogsal.is - hlaðvarp fræðir Þorleifur Kr. Níelsson, félagsráðgjafi, fjölskyldufræðingur og sáttamiðlari, hlustendur um sáttamiðlun.
„Sauðburður gengur ágætlega og nálgast að verða hálfnaður. Frjósemi er mikil og heilbrigðið gott,“ segir Ásta F. Flosadóttir bóndi á Höfða í Grýtubakkahreppi.
Síðustu ár hafa orðið miklar framfarir þegar kemur að millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. Við þekkjum lífsgæðin sem því fylgja, enda er ferðlagið til Keflavíkur oft kostnaðarsamasti og tímafrekasti leggur ferðalagsins þegar haldið er utan. Beint millilandaflug um Akureyrarflugvöll skiptir atvinnulífið einnig verulegu máli enda ein megin forsenda fyrir auknum komum ferðamanna, ekki síst utan háannatíma þegar ferðalög eru að jafnaði styttri. Stærsti einstaki áfanginn á þessari leið er tilkoma Easy Jet, sem flogið hefur beint milli Akureyrar og London frá því síðastliðið haust. Ekkert kemur til af sjálfu sér og fjölmargt hefur þurft að koma saman svo að Akureyri og Egilsstaðir séu raunhæfir valkostir þegar kemur að millilandaflugi.
Athugasemdir