Um 110 reiðhjól verða afhent sveitarfélögunum og munu þau nýtast sem ókeypis farkostur fyrir bæjarbúa og ferðafólk í allt sumar. Reiðhjólunum verður komið fyrir við sundlaugar á hverjum stað og verða þau aðgengileg til notkunar á opnunartíma þeirra í sumar.
Frumkvæðið að verkefninu kemur frá Vodafone, sem hefur unnið með sveitarfélögunum að framkvæmdinni undanfarna mánuði. Tryggingamiðstöðin mun hins vegar útvega reiðhjólahjálma sem fást afhentir í afgreiðslu sundlauganna til notkunar með hjólunum. Reiðhjólin á Akureyri verða 50 talsins en Dalvík og Húsavík fá 30 hjól hvort sveitarfélag.
Vodafone afhendir alls um 400 reiðhjól í 13 sveitarfélögum á landsbyggðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem reiðhjólum er dreift til almennings með þessum hætti á Íslandi, en víða í stórborgum erlendis þekkist svipað fyrirkomulag. Með verkefninu komast því Akureyri, Akranes, Borgarnes, Dalvík, Egilsstaðir, Grindavík, Húsavík, Ísafjörður, Neskaupsstaður, Reykjanesbær, Sauðárkrókur, Selfoss og Vestmannaeyjar í hóp stórborga á borð við Kaupmannahöfn og Barcelona!
Markmið Vodafone með framtakinu er að hvetja til hollrar og skemmtilegrar hreyfingar yfir sumartímann og auðvelda fólki að ferðast innanbæjar á umræddum stöðum. Starfsmenn sveitarfélagana munu fylgjast með hjólunum á hverjum stað og annast nauðsynlegar viðgerðir.