Hann segir að tekist hafi að minnka rekstrarkostnað sveitarfélagsins milli ára um nær 27 milljónir króna, en tekjur hafi hins vegar aukist um 23 milljónir. „Þannig að eins og staðan er nú þá lítur út fyrir að sveitarfélagið verði rekið með rekstrarafgangi upp á tæplega 39 miljónir á þessu ári," segir Jónas. Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár er gert ráð fyrir svipuðum rekstri og verið hefur á þessu ári, þ.e.a.s. gætt verður aðhalds á öllum sviðum en ekki farið í frekari niðurskurð. Lítið verður um gjaldskrárbreytingar en þó er gert ráð fyrir að sorphirðugjöld hækki um 20% og rotþróargjöld um 10% og þá verður gjaldskrá yfirfarin vegna skóla og leikskóla meðal annars með tilliti til afslátta.
Gert er ráð fyrir lækkandi tekjum milli ára. Miðað við þær forsendur er búist við að tekjur A-hluta sveitarsjóðs verði um 522 milljónir króna og rekstrargjöld verði um 520 milljónir króna.